Spurt og svarað
Hér er að finna svör við helstu spurningum sem koma frá skólum varðandi umsóknir, námskeið, reikningamál o.fl.
Hvernig styrki veitir Forritarar framtíðarinnar?
Styrkir Forritara framtíðarinnar felast í eftirfarandi til notkunar í forritunar- og tæknikennslu:
- Styrkur til að þjálfa kennara
- Styrkur til námsefnisgerðar
- Styrkur til kaupa á minni tækjum
- Notuðum og yfirförnum tækjabúnaði
Skilmálar úthlutunar
Þeir skólar sem fá úthlutað styrk þurfa að skila inn undirrituðum samningi áður en styrkur er nýttur á netfangið forritarar@forritarar.is
Hvernig á að sækja um endurgreiðslu til Forritara framtíðarinnar vegna veittra styrkja?
- Skóli kaupir tæki/námskeið og greiðir fyrir það.
- Skóli býr til reikning á Forritara framtíðarinnar og hefur afrit af greiddum reikningi fyrir keypt tæki/námskeið sem fylgiskjal. Útgefin reikningur til Forritara Framtíðarinnar skal ekki vera hærri en veittur styrkur. Mikilvægt er að nafn skóla komi fram á reikningi. Kennitala sjóðsins er 451213-0670.
- Reikningur fyrir námsefnisstyrk skal sendur af skóla eftir að efni hefur verið skilað til Forritara framtíðarinnar.
Er leyfilegt að kaupa smátæki frá hvaða söluaðila sem er?
Leyfilegt er að kaupa smátæki frá hvaða fyrirtæki sem, innlendu eða erlendu. Reikningur frá söluaðila þarf að fylgja með reikningi sem sendur er á Forritara framtíðarinnar. Ef söluaðili er erlendur skal miða við gengi Seðlabankans á þeim degi sem varan var keypt.
Fyrir hvaða tíma þarf að nýta styrk frá Forriturum framtíðarinnar?
Styrkjum er úthlutað til skóla fyrir lok júni ár hvert. Gert er ráð fyrir að styrkir séu nýttir fyrir 1. maí árið á eftir.
Er hægt að sækja um að fá fartölvur?
Framboð búnaðar er mismunandi milli ára, reynt er eftir bestu getu að uppfylla allar óskir. Tölvurnar eru yfirfarnar áður en þær eru afhentar.