Eflum forritunar- og tæknimenntun í grunn- og framhaldsskólum
Um sjóðinn
Forritarar framtíðarinnar er samfélagsverkefni sem hefur það hlutverk að efla og auka áhuga á forritun og hagnýtingu á tækni í skólum landsins.
Hægt er að sækja um:
- Námskeiðsstyrk fyrir kennara til forritunar- og tæknikennslu
- Tölvubúnað; notaðar borðvélar, skjáir, mýs og lyklaborð sem eru yfirfarnar af kerfistjórum hollvina FF
- Styrk til námsefnisgerðar í forritunar- og tæknikennslu
- Styrk til kaupa á minni tækjum í forritunar- og tæknikennslu
Kennitala sjóðsins er 451213-0670

Atvinnulífið
Fyrirtæki úr atvinnulífinu eru hollvinir og leggja sjóðnum lið með framlögum í formi peninga eða tölvubúnaðar.

Hverjir geta sótt um?

Skilyrði styrkveitingar
Ef sótt er um styrk til námsefnisgerðar er skilyrði að námsefnið sé opið með Create Commons og sé skilað inn til Forritar Framtíðarinnar.
.

Hollvinir
Hollvinir sjóðsins gera honum kleift að starfa. Þeir leggja sjóðnum til framlag í formi peninga og/eða tölvubúnaðar.
Umsóknir
Við hvetjum alla grunn- og framhaldsskóla sem og sveitarfélög til að sækja um. Sjóðurinn reynir eftir bestu getu að koma til móts við sem flestar umsóknir.
Fréttir
Ný stjórn tekur við
Aðalfundur Forritara framtíðarinnar fór fram 9. október síðastliðinn. Á fundinum var kosin ný stjórn sem skipt hefur með sér verkum. Í stjórn forritara framtíðarinnar eru: Friðrik G. Guðnason, forstöðumaður Högunar hjá Landsbankanum (formaður stjórnar), Elsa M....
29 grunnskólar fá styrki sem nema 9 milljónum króna frá Forriturum framtíðarinnar
Forritarar framtíðarinnar hafa nú lokið úthlutun styrkja fyrir þetta ár og hlutu 29 grunnskólar styrki sem nema 9 milljónum króna. 1,5 milljón rann til námskeiða innan skólanna en 7,5 milljónir til kaupa á smærri tækjum í forritunar og tæknikennslu ásamt úthlutun á...
Opið fyrir umsóknir 2020
Búið er að opna fyrir umsóknir hjá Forriturum framtíðarinnar fyrir árið 2020. Eins og fyrri ár er hægt að sækja um námskeiðsstyrk fyrir kennara til forritunar- og tæknikennslu og yfirfarinn notaðan tölvubúnað. Í ár verður einnig hægt er að sækja um styrk til...
Hollvinir sjóðsins
Við þökkum hollvinum sjóðsins fyrir stuðninginn!
Hollvinir sjóðsins eru eftirfarandi Reiknistofa bankanna, Landsbankinn, CCP, Össur, Íslandsbanki og WebMo design.