by Halla Ragnarsdóttir | mar 15, 2026 | Fréttir
Opið er fyrir umsóknir á styrkjum frá Forriturum framtíðarinnar fyrir árið 2026 frá 12. mars – 15. maí 2026. Umsóknarformið má nálgast hér.
HÆGT ER AÐ SÆKJA UM:
- Námskeiðsstyrk fyrir kennara til forritunar- og tæknikennslu
- Tölvubúnað; notaðar tölvur, skjáir, mýs og lyklaborð sem eru yfirfarnar af kerfistjórum hollvina FF
- Styrk til kaupa á minni tækjum í forritunar- og tæknikennslu
- Styrk til námsefnisgerðar
Hægt er að sækja um styrk í einum eða fleiri af ofangreindum flokkum.
SKILYRÐI STYRKVEITINGA
Skólinn tilgreinir þá fjárupphæð sem hann telur sig þurfa í þeim flokkum sem sótt er um. Ekki er hægt að lofa því að skólinn fái styrk fyrir allri upphæðinni sem sótt er um.
Ath. Úthlutun styrkja sem sótt er um gildir fyrir skólaárið 2026-2027. Eldri ónýttir styrkir falla sjálfkrafa niður 30. apríl 2027.
Bendum á Spurt og svarað ef eitthvað er óljóst varðandi styrki.
UMSÓKNARFRESTUR ER TIL 15. MAÍ 2026 OG NIÐURSTAÐA ÚTHLUTUNAR VERÐUR TILKYNNT Í TÖLVUPÓSTI Í BYRJUN JÚNÍ.
Hollvinir sjóðsins árið 2026 eru Reiknistofa bankanna, Landsbankinn, CCP Games, Íslandsbanki, Marel, Arion Banki og Wise.
by Halla Ragnarsdóttir | mar 11, 2026 | Fréttir
Ný stjórn var kjörin á aðalfundi Forritara framtíðarinnar í haust. Inn í stjórnina koma Halla Björk Ragnarsdóttir f.h. Marel, Helga Þorvaldsdóttir f.h. Landsbankans og Elínborg Anna Siggeirsdóttir f.h. óháðra. Stjórn sjóðsins skipa því nú:
- Formaður stjórnar: Unnar Steinn Sigtryggsson, CCP games
- Gjaldkeri: Klara Berta Hinriksdóttir, ALM verðbréf
- Ritari: Helga Þorvaldsóttir, Landsbankinn
- Meðstjórnandi: Halla Björk Ragnarsdóttir, Marel
- Óháður stjórnarmaður: Elínborg Anna Siggeirsdóttir, Mýrarhúsaskóli
Sjóðurinn „Forritarar framtíðarinnar” er samfélagsverkefni sem hefur það hlutverk að efla forritunar- og tæknimenntun í grunn- og framhaldsskólum landsins. Um er að ræða samstarfsverkefni aðila atvinnulífsins. Framtíðarsýn sjóðsins er að auka fræðslu og áhuga á meðal barna og unglinga á forritun og tækni.
Úthlutun úr sjóði Forritara framtíðarinnar fyrir árið 2025 fór fram á vormánuðum og styrkti sjóðurinn alls 24 skóla um sem nemur rúmlega 6,7 milljónum króna.
Hollvinir sjóðsins árið 2025 eru Reiknistofa bankanna, Landsbankinn, CCP, Advania, Íslandsbanki, Arion banki, Marel og starfsmenn Bentley Systems Iceland. Auðvelt er að gerast hollvinur á vefnum www.forritarar.is
by Unnar Steinn Sigtryggsson | maí 26, 2025 | Fréttir
Úthlutun ársins 2025 er lokið og í ár styrkir sjóðurinn 24 skóla um sem nemur rúmum 6,7 milljónum króna. Styrkir skiptast í tvo meginflokka, annars vegar er úthlutað um 1,3 milljónum króna vegna námskeiða sem kennarar geta sótt til að efla sig í forritunarkennslu og hins vegar um 5,4 milljónum króna til kaupa á smátækjum í forritunar- og tæknikennslu auk úthlutunar á notuðum tölvubúnaði sem hollvinir FF gefa sjóðnum árlega.
Ljóst er að þörf skóla er mikil á þessu sviði því í ár var sótt um styrki sem í heild nam rúmum 18 milljónum króna og því ljóst að ekki var hægt að veita öllum styrk sem sóttu um. Þegar valið var úr umsóknum var horft til þess hvort skólar hafi sótt um og fengið styrk síðasta skólaár og var sett þak á styrkina; að hámarki var hægt að fá 200 þúsund króna styrk til að sækja námskeið í forritunarkennslu og að hámarki var hægt að fá 200 þúsund króna styrk til tækjakaupa.
Eftirtaldir 24 skólar fengu styrk í ár og óskum við þeim innilega til hamingju: Vopnafjarðarskóli, Kársnesskóli, Skarðshlíðarskóli, Breiðholtsskóli, Norðlingaskóli, Nesskóli, Vesturbæjarskóli, Lundarskóli, Grandaskóli, Fellaskóli, Fljótsdalshéraði, Njarðvíkurskóli, Vatnsendaskóli, Salaskóli, Valhúsaskóli, Mýrarhúsaskóli, Kóraskóli, Urriðaholtsskóli, Hvaleyrarskóli, Brekkubæjarskóli, Álftamýrarskóli, Víkurskóli, Álftamýrarskóli, Flóaskóli, Myllubakkaskóli
Við vonumst til að styrkurinn komi að góðum notum og styðji við hlutverk Forritara framtíðarinnar að efla forritunar- og tæknimenntun í skólum landsins.
Hollvinir sjóðsins árið 2025 eru: RB, Landsbankinn, Íslandsbanki, Marel, CCP, Arion banki, Advania og starfsfólk Bentley Systems. Þökkum kærlega fyrir stuðninginn og bendum á að nýir hollvinir eru alltaf velkomnir.
Sjóðurinn „Forritarar framtíðarinnar” er samfélagsverkefni sem hefur það hlutverk að efla forritunar- og tæknimenntun í grunn- og framhaldsskólum landsins. Um er að ræða samstarfsverkefni aðila atvinnulífsins. Framtíðarsýn sjóðsins er að auka fræðslu og áhuga á meðal barna og unglinga á forritun og tækni.
Stjórn Forritara framtíðarinnar:
Hjalti Harðarson, Landsbankinn
Klara Berta Hinriksdóttir, Advania
Hrefna Björg Gylfadóttir, Marel
Unnar Steinn Sigtryggsson, CCP
Guðrún Vala Ólafsdóttir, Kársnesskóla
by Guðrún Vala Ólafsdóttir | mar 19, 2025 | Fréttir
Opið er fyrir umsóknir á styrkjum frá Forriturum framtíðarinnar fyrir árið 2025 frá 20 mars – 15. maí 2025. Sjá umsóknarform hér.
HÆGT ER AÐ SÆKJA UM:
– Námskeiðsstyrk fyrir kennara til forritunar- og tæknikennslu
– Tölvubúnað; notaðar borðvélar, skjáir, mýs og lyklaborð sem eru yfirfarnar af kerfistjórum hollvina FF
– Styrk til kaupa á minni tækjum í forritunar- og tæknikennslu
Hægt er að sækja um styrk í einum eða fleiri af ofangreindum flokkum.
SKILYRÐI STYRKVEITINGA
Skólinn tilgreinir þá fjárupphæð sem hann telur sig þurfa í þeim flokkum sem sótt er um. Ekki er hægt að lofa því að skólinn fái styrk fyrir allri upphæðinni sem sótt er um.
Ath. Úthlutun styrkja sem sótt er um gildir fyrir skólaárið 2025-2026. Eldri ónýttir styrkir falla sjálfkrafa niður 30. apríl 2026.
Bendum á Spurt og svarað ef eitthvað er óljóst varðandi styrki.
UMSÓKNARFRESTUR ER TIL 15. MAÍ 2025 OG NIÐURSTAÐA ÚTHLUTUNAR VERÐUR TILKYNNT Í TÖLVUPÓSTI Í BYRJUN JÚNÍ.
Hollvinir sjóðsins árið 2025 eru Reiknistofa bankanna, Landsbankinn, CCP Games, Íslandsbanki, Marel, Arion Banki, Bentley Systems og Advania.
by Guðrún Vala Ólafsdóttir | des 17, 2024 | Fréttir
Ný stjórn var kjörin á aðalfundi Forritara framtíðarinnar sem fram fór á dögunum. Inn í stjórnina koma Hrefna Björg Gylfadóttir f.h. Marel, Unnar Steinn Sigtryggsson f.h. CCP games og Klara Berta Hinriksdóttir f.h. Advania. Stjórn sjóðsins skipa því nú:
- Formaður stjórnar: Hjalti Harðarson, Landsbankinn
- Gjaldkeri: Klara Berta Hinriksdóttir, Advania
- Ritari: Unnar Steinn Sigtryggsson, CCP games
- Meðstjórnandi: Hrefna Björg Gylfadóttir, Marel
- Óháður stjórnarmaður:Guðrún Vala Ólafsdóttir, Vatnsendaskóli

Ný stjórn Forritarar framtíðarinnar: Klara Berta Hinriksdóttir, Guðrún Vala Ólafsdóttir, Hrefna Björg Gylfadóttir og Hjalti Harðarson. Á myndina vantar Unnar Stein Sigtryggsson
Sjóðurinn „Forritarar framtíðarinnar” er samfélagsverkefni sem hefur það hlutverk að efla forritunar- og tæknimenntun í grunn- og framhaldsskólum landsins. Um er að ræða samstarfsverkefni aðila atvinnulífsins. Framtíðarsýn sjóðsins er að auka fræðslu og áhuga á meðal barna og unglinga á forritun og tækni.
Úthlutun úr sjóði Forritara framtíðarinnar fyrir árið 2024 fór fram á vormánuðum og styrkti sjóðurinn alls 13 skóla um sem nemur rúmlega 4,2 milljónum króna.
Hollvinir sjóðsins árið 2024 eru Reiknistofa bankanna, Landsbankinn, CCP, Advania, Íslandsbanki, Arion banki, Marel og starfsmenn Bentley Systems Iceland. Auðvelt er að gerast hollvinur á vefnum www.forritarar.is
by Sunneva Þorsteinsdóttir | apr 9, 2024 | Fréttir
Nú er opið fyrir umsóknir á styrkjum frá Forriturum framtíðarinnar fyrir árið 2024. Eins og fyrri ár er hægt að sækja um námskeiðsstyrk fyrir kennara til forritunar- og tæknikennslu og yfirfarinn notaðan tölvubúnað ásamt styrk til kaupa á minni tækjum í forritunar- og tæknikennslu. Að þessu sinni verður einnig hægt að sækja um styrki til netnámskeiða og notaðar fartölvur.
HÆGT ER AÐ SÆKJA UM:
– Námskeiðsstyrk fyrir kennara til forritunar- og tæknikennslu
– Tölvubúnað; notaðar borðvélar, skjáir, mýs og lyklaborð sem eru yfirfarnar af kerfistjórum hollvina FF
– Styrk til kaupa á minni tækjum í forritunar- og tæknikennslu
Hægt er að sækja um styrk í einum eða fleiri af ofangreindum flokkum og er umsóknarformið undir valmyndinni SKÓLAR efst á síðunni.
SKILYRÐI STYRKVEITINGA
Skólinn tilgreinir þá fjárupphæð sem hann telur sig þurfa í þeim flokkum sem sótt er um. Ekki er hægt að lofa því að skólinn fái styrk fyrir allri upphæðinni sem sótt er um.
Ath. Úthlutun styrkja sem sótt er um gildir fyrir skólaárið 2024-2025. Eldri ónýttir styrkir falla sjálfkrafa niður 30. apríl 2024.
Bendum á Spurt og svarað ef eitthvað er óljóst varðandi styrki.
UMSÓKNARFRESTUR ER TIL 15. MAÍ 2024 OG NIÐURSTAÐA ÚTHLUTUNAR VERÐUR TILKYNNT Í TÖLVUPÓSTI Í BYRJUN JÚNÍ.
Hollvinir sjóðsins árið 2024 eru Reiknistofa bankanna, Landsbankinn, CCP Games, Íslandsbanki, Marel, Arion Banki, Bentley Systems, Valitor og WebMo design.