Úthlutun 2023

Úthlutun ársins 2023 er lokið og í ár styrkir sjóðurinn 30 skóla um sem nemur rúmum 5,5 milljónum króna. Styrkir skiptast í tvo meginflokka, annars vegar er úthlutað um 3,7 milljónum króna vegna námskeiða sem kennarar geta sótt til að efla sig í forritunarkennslu og hins vegar um 1,8 milljónum króna til kaupa á smátækjum í forritunar- og tæknikennslu auk úthlutunar á notuðum tölvubúnaði sem hollvinir FF gefa sjóðnum árlega.

Ljóst er að þörf skóla er mikil á þessu sviði því í ár var sótt um styrki sem í heild nam tæpum 37 milljónum króna og því ljóst að ekki var hægt að veita öllum styrk sem sóttu um. Þegar valið var úr umsóknum var horft til þess hvort skólar hafi sótt um og fengið styrk síðasta skólaár og var sett þak á styrkina; að hámarki var hægt að fá 250 þúsund króna styrk til að sækja námskeið í forritunarkennslu og að hámarki var hægt að fá 150 þúsund króna styrk til tækjakaupa.

Eftirtaldir 30 skólar fengu styrk í ár og óskum við þeim innilega til hamingju: Álftamýrarskóli, Stekkjaskóli, Vesturbæjarskóli, Engjaskóli, Waldorfskólinn Lækjarbotnum, Skarðshlíðarskóli, Hrafnagilsskóli, Vatnsendaskóli, Stórutjarnaskóli, Árbæjarskóli, Borgaskóli, Tálknafjarðarskóli, Njarðvíkurskóli, Grunnskólinn í Þorlákshöfn, Nesskóli Neskaupstað, Lindaskóli, Reykholtsskóli, Grunnskóli Snæfellsbæjar, Álftanesskóli, Sérdeild Suðurlands- Sunnulækjarskóli, Grunnskólinn Hellu, Grunnskóli Fjallabyggðar, Fellaskóli – Fljótsdalshéraði, Urriðaholtsskóli, Víkurskóli Vík í Mýrdal, Sunnulækjarskóli, Garðaskóli, Grunnskóli Grundarfjarðar, Egilsstaðaskóli og Ísaksskóli.

Við vonumst til að styrkurinn komi að góðum notum og styðji við hlutverk Forritara framtíðarinnar að efla forritunar- og tæknimenntun í skólum landsins.

Hollvinir sjóðsins árið 2023 eru: RB, Íslandsbanki, Landsbankinn, Marel, CCP, Bentley Systems, Webmo design og Rapyd. Þökkum kærlega fyrir stuðninginn og bendum á að nýir hollvinir eru alltaf velkomnir.

Sjóðurinn „Forritarar framtíðarinnar” er samfélagsverkefni sem hefur það hlutverk að efla forritunar- og tæknimenntun í grunn- og framhaldsskólum landsins. Um er að ræða samstarfsverkefni aðila atvinnulífsins. Framtíðarsýn sjóðsins er að auka fræðslu og áhuga á meðal barna og unglinga á forritun og tækni.

Stjórn Forritara framtíðarinnar:
Arnheiður Guðmundsdóttir, Ský
Hjalti Harðarson, Landsbankinn
Linda Björg Stefánsdóttir, RB
Sindri Ólafsson, Marel
Sunneva Þorsteinsdóttir, CCP