by Halla Ragnarsdóttir | mar 15, 2026 | Fréttir
Opið er fyrir umsóknir á styrkjum frá Forriturum framtíðarinnar fyrir árið 2026 frá 12. mars – 15. maí 2026. Umsóknarformið má nálgast hér.
HÆGT ER AÐ SÆKJA UM:
- Námskeiðsstyrk fyrir kennara til forritunar- og tæknikennslu
- Tölvubúnað; notaðar tölvur, skjáir, mýs og lyklaborð sem eru yfirfarnar af kerfistjórum hollvina FF
- Styrk til kaupa á minni tækjum í forritunar- og tæknikennslu
- Styrk til námsefnisgerðar
Hægt er að sækja um styrk í einum eða fleiri af ofangreindum flokkum.
SKILYRÐI STYRKVEITINGA
Skólinn tilgreinir þá fjárupphæð sem hann telur sig þurfa í þeim flokkum sem sótt er um. Ekki er hægt að lofa því að skólinn fái styrk fyrir allri upphæðinni sem sótt er um.
Ath. Úthlutun styrkja sem sótt er um gildir fyrir skólaárið 2026-2027. Eldri ónýttir styrkir falla sjálfkrafa niður 30. apríl 2027.
Bendum á Spurt og svarað ef eitthvað er óljóst varðandi styrki.
UMSÓKNARFRESTUR ER TIL 15. MAÍ 2026 OG NIÐURSTAÐA ÚTHLUTUNAR VERÐUR TILKYNNT Í TÖLVUPÓSTI Í BYRJUN JÚNÍ.
Hollvinir sjóðsins árið 2026 eru Reiknistofa bankanna, Landsbankinn, CCP Games, Íslandsbanki, Marel, Arion Banki og Wise.
by Halla Ragnarsdóttir | mar 11, 2026 | Fréttir
Ný stjórn var kjörin á aðalfundi Forritara framtíðarinnar í haust. Inn í stjórnina koma Halla Björk Ragnarsdóttir f.h. Marel, Helga Þorvaldsdóttir f.h. Landsbankans og Elínborg Anna Siggeirsdóttir f.h. óháðra. Stjórn sjóðsins skipa því nú:
- Formaður stjórnar: Unnar Steinn Sigtryggsson, CCP games
- Gjaldkeri: Klara Berta Hinriksdóttir, ALM verðbréf
- Ritari: Helga Þorvaldsdóttir, Landsbankinn
- Meðstjórnandi: Halla Björk Ragnarsdóttir, Marel
- Óháður stjórnarmaður: Elínborg Anna Siggeirsdóttir, Mýrarhúsaskóli
Sjóðurinn „Forritarar framtíðarinnar” er samfélagsverkefni sem hefur það hlutverk að efla forritunar- og tæknimenntun í grunn- og framhaldsskólum landsins. Um er að ræða samstarfsverkefni aðila atvinnulífsins. Framtíðarsýn sjóðsins er að auka fræðslu og áhuga á meðal barna og unglinga á forritun og tækni.
Úthlutun úr sjóði Forritara framtíðarinnar fyrir árið 2025 fór fram á vormánuðum og styrkti sjóðurinn alls 24 skóla um sem nemur rúmlega 6,7 milljónum króna.
Hollvinir sjóðsins árið 2025 eru Reiknistofa bankanna, Landsbankinn, CCP, Advania, Íslandsbanki, Arion banki, Marel og starfsmenn Bentley Systems Iceland. Auðvelt er að gerast hollvinur á vefnum www.forritarar.is