Ný stjórn var kjörin á aðalfundi Forritara framtíðarinnar í haust. Inn í stjórnina koma Halla Björk Ragnarsdóttir f.h. Marel, Helga Þorvaldsdóttir f.h. Landsbankans og Elínborg Anna Siggeirsdóttir f.h. óháðra. Stjórn sjóðsins skipa því nú:

  • Formaður stjórnar: Unnar Steinn Sigtryggsson, CCP games
  • Gjaldkeri: Klara Berta Hinriksdóttir, ALM verðbréf
  • Ritari: Helga Þorvaldsóttir, Landsbankinn
  • Meðstjórnandi: Halla Björk Ragnarsdóttir, Marel
  • Óháður stjórnarmaður: Elínborg Anna Siggeirsdóttir, Mýrarhúsaskóli

Sjóðurinn „Forritarar framtíðarinnar” er samfélagsverkefni sem hefur það hlutverk að efla forritunar- og tæknimenntun í grunn- og framhaldsskólum landsins. Um er að ræða samstarfsverkefni aðila atvinnulífsins. Framtíðarsýn sjóðsins er að auka fræðslu og áhuga á meðal barna og unglinga á forritun og tækni.

Úthlutun úr sjóði Forritara framtíðarinnar fyrir árið 2025 fór fram á vormánuðum og styrkti sjóðurinn alls 24 skóla um sem nemur rúmlega 6,7 milljónum króna.

Hollvinir sjóðsins árið 2025 eru Reiknistofa bankanna, Landsbankinn, CCP, Advania, Íslandsbanki, Arion banki, Marel og starfsmenn Bentley Systems Iceland. Auðvelt er að gerast hollvinur á vefnum www.forritarar.is