Opið er fyrir umsóknir á styrkjum frá Forriturum framtíðarinnar fyrir árið 2026 frá 12. mars – 15. maí 2026. Umsóknarformið má nálgast hér.

HÆGT ER AÐ SÆKJA UM:
  • Námskeiðsstyrk fyrir kennara til forritunar- og tæknikennslu
  • Tölvubúnað; notaðar tölvur, skjáir, mýs og lyklaborð sem eru yfirfarnar af kerfistjórum hollvina FF
  • Styrk til kaupa á minni tækjum í forritunar- og tæknikennslu
  • Styrk til námsefnisgerðar

Hægt er að sækja um styrk í einum eða fleiri af ofangreindum flokkum.

SKILYRÐI STYRKVEITINGA

Skólinn tilgreinir þá fjárupphæð sem hann telur sig þurfa í þeim flokkum sem sótt er um. Ekki er hægt að lofa því að skólinn fái styrk fyrir allri upphæðinni sem sótt er um.
Ath. Úthlutun styrkja sem sótt er um gildir fyrir skólaárið 2026-2027. Eldri ónýttir styrkir falla sjálfkrafa niður 30. apríl 2027.

Bendum á Spurt og svarað ef eitthvað er óljóst varðandi styrki.

UMSÓKNARFRESTUR ER TIL 15. MAÍ 2026 OG NIÐURSTAÐA ÚTHLUTUNAR VERÐUR TILKYNNT Í TÖLVUPÓSTI Í BYRJUN JÚNÍ.

Hollvinir sjóðsins árið 2026 eru Reiknistofa bankanna, Landsbankinn, CCP Games, Íslandsbanki, Marel, Arion Banki og Wise.