Ný stjórn var kjörin á aðalfundi Forritara framtíðarinnar í haust. Inn í stjórnina koma Hans Róbert Hlynsson f.h. Íslandsbanka og Íris Hlín Vöggsdóttir f.h. Reiknistofu Bankanna. Stjórn sjóðsins skipa því nú:
- Formaður stjórnar: Halla Björk Ragnarsdóttir, JBT Marel
- Gjaldkeri: Hans Róbert Hlynsson, Íslandsbanki
- Ritari: Helga Þorvaldsdóttir, Landsbankinn
- Meðstjórnandi: Íris Hlín Vöggsdóttir, Reiknistofa Bankanna
- Óháður stjórnarmaður: Elínborg Anna Siggeirsdóttir, Mýrarhúsaskóli
Sjóðurinn „Forritarar framtíðarinnar” er samfélagsverkefni sem hefur það hlutverk að efla forritunar- og tæknimenntun í skólum landsins. Um er að ræða samstarfsverkefni aðila atvinnulífsins. Framtíðarsýn sjóðsins er að auka fræðslu og áhuga á meðal barna og unglinga á forritun og tækni.
Úthlutun úr sjóði Forritara framtíðarinnar fyrir árið 2026 fór fram á vormánuðum og styrkti sjóðurinn alls 14 skóla um sem nemur rúmlega 5,9 milljónum króna. Einnig útdeildi sjóðurinn tæplega 90 tölvum frá hollvinum til skóla til notkunar við tæknikennslu. Á þessu ári var lögð aukin áhersla á að opna á styrki til yngri námsstiga og var því leikskóli á meðal þeirra skóla sem fengu styrk í ár.
Eftirfarandi skólar fengu styrk í ár: Álftamýrarskóli, Árbæjarskóli, Borgaskóli, Brekkuskóli, Fossvogsskóli, Giljaskóli, Höfðaskóli, Hvaleyrarskóli, Leikskólinn Tjarnarás, Mýrarhúsaskóli, Norðlingaskóli, Selásskóli, Setbergsskóli og Vogaskóli.
Við vonumst til að styrkurinn komi að góðum notum og styðji við hlutverk Forritara framtíðarinnar að efla forritunar- og tæknimenntun í skólum landsins.
Hollvinir sjóðsins árið 2026 eru Reiknistofa bankanna, Landsbankinn, Fenris Creations, Íslandsbanki, Arion banki, JBT Marel og Wise. Auðvelt er að gerast hollvinur á vefnum www.forritarar.is