Opið fyrir umsóknir 2025

Opið er fyrir umsóknir á styrkjum frá Forriturum framtíðarinnar fyrir árið 2025 frá 20 mars – 15. maí 2025. Sjá umsóknarform hér.

HÆGT ER AÐ SÆKJA UM:
– Námskeiðsstyrk fyrir kennara til forritunar- og tæknikennslu
– Tölvubúnað; notaðar borðvélar, skjáir, mýs og lyklaborð sem eru yfirfarnar af kerfistjórum hollvina FF
– Styrk til kaupa á minni tækjum í forritunar- og tæknikennslu

Hægt er að sækja um styrk í einum eða fleiri af ofangreindum flokkum.

SKILYRÐI STYRKVEITINGA
Skólinn tilgreinir þá fjárupphæð sem hann telur sig þurfa í þeim flokkum sem sótt er um. Ekki er hægt að lofa því að skólinn fái styrk fyrir allri upphæðinni sem sótt er um.
Ath. Úthlutun styrkja sem sótt er um gildir fyrir skólaárið 2025-2026. Eldri ónýttir styrkir falla sjálfkrafa niður 30. apríl 2026.

Bendum á Spurt og svarað ef eitthvað er óljóst varðandi styrki.

UMSÓKNARFRESTUR ER TIL 15. MAÍ 2025 OG NIÐURSTAÐA ÚTHLUTUNAR VERÐUR TILKYNNT Í TÖLVUPÓSTI Í BYRJUN JÚNÍ.

Hollvinir sjóðsins árið 2025 eru Reiknistofa bankanna, Landsbankinn, CCP Games, Íslandsbanki, Marel, Arion Banki, Bentley Systems og Advania.

Ný stjórn Forritara framtíðarinnar

Ný stjórn var kjörin á aðalfundi Forritara framtíðarinnar sem fram fór á dögunum. Inn í stjórnina koma Hrefna Björg Gylfadóttir f.h. Marel, Unnar Steinn Sigtryggsson f.h. CCP games og Klara Berta Hinriksdóttir f.h. Advania. Stjórn sjóðsins skipa því nú:

  • Formaður stjórnar: Hjalti Harðarson, Landsbankinn
  • Gjaldkeri: Klara Berta Hinriksdóttir, Advania
  • Ritari: Unnar Steinn Sigtryggsson, CCP games
  • Meðstjórnandi: Hrefna Björg Gylfadóttir, Marel
  • Óháður stjórnarmaður:Guðrún Vala Ólafsdóttir, Vatnsendaskóli

Ný stjórn Forritarar framtíðarinnar: Klara Berta Hinriksdóttir, Guðrún Vala Ólafsdóttir, Hrefna Björg Gylfadóttir og Hjalti Harðarson. Á myndina vantar Unnar Stein Sigtryggsson

Sjóðurinn „Forritarar framtíðarinnar” er samfélagsverkefni sem hefur það hlutverk að efla forritunar- og tæknimenntun í grunn- og framhaldsskólum landsins. Um er að ræða samstarfsverkefni aðila atvinnulífsins. Framtíðarsýn sjóðsins er að auka fræðslu og áhuga á meðal barna og unglinga á forritun og tækni.

Úthlutun úr sjóði Forritara framtíðarinnar fyrir árið 2024 fór fram á vormánuðum og styrkti sjóðurinn alls 13 skóla um sem nemur rúmlega 4,2 milljónum króna.

Hollvinir sjóðsins árið 2024 eru Reiknistofa bankanna, Landsbankinn, CCP, Advania, Íslandsbanki, Arion banki, Marel og starfsmenn Bentley Systems Iceland. Auðvelt er að gerast hollvinur á vefnum www.forritarar.is