Nú er opið fyrir umsóknir á styrkjum frá Forriturum framtíðarinnar fyrir árið 2023. Eins og fyrri ár er hægt að sækja um námskeiðsstyrk fyrir kennara til forritunar- og tæknikennslu og yfirfarinn notaðan tölvubúnað ásamt styrk til kaupa á minni tækjum í forritunar- og tæknikennslu.

HÆGT ER AÐ SÆKJA UM:
– Námskeiðsstyrk fyrir kennara til forritunar- og tæknikennslu
– Tölvubúnað; notaðar borðvélar, skjáir, mýs og lyklaborð sem eru yfirfarnar af kerfistjórum  hollvina FF
– Styrk til kaupa á minni tækjum í forritunar- og tæknikennslu

Hægt er að sækja um styrk í einum eða fleiri af ofangreindum flokkum og er umsóknarformið undir valmyndinni SKÓLAR efst á síðunni.

SKILYRÐI STYRKVEITINGA
Skólinn tilgreinir þá fjárupphæð sem hann telur sig þurfa í þeim flokkum sem sótt er um. Ekki er hægt að lofa því að skólinn fái styrk fyrir allri upphæðinni sem sótt er um.
Ath. Úthlutun styrkja sem sótt er um gildir fyrir skólaárið 2023-2024. Eldri ónýttir styrkir falla sjálfkrafa niður 30. apríl 2023.
Bendum á Spurt og svarað ef eitthvað er óljóst varðandi styrki.

UMSÓKNARFRESTUR ER TIL 15. MAÍ 2023 OG NIÐURSTAÐA ÚTHLUTUNAR VERÐUR TILKYNNT Í TÖLVUPÓSTI Í BYRJUN JÚNÍ.

Hollvinir sjóðsins árið 2023 eru Reiknistofa bankanna, Landsbankinn, CCP, Íslandsbanki , Marel, Bentley Systems, Valitor og WebMo design.