Ný stjórn Forritara framtíðarinnar

Ný Stjórn Forritara framtíðarinnar

Ný stjórn var kjörin á aðalfundi Forritara framtíðarinnar sem fram fór á dögunum. Inn í stjórnina koma Sindri Ólafsson f.h. Marel, Hjalti Harðarson f.h. Landsbankans og Sunneva Þorsteinsdóttir f.h. CCP. Þau taka við af þeim Friðriki G. Guðjónssyni, Birgittu Strange og Sigfríði Sigurðardóttur sem víkja úr stjórninni og er þeim þakkað fyrir störf sín í þágu sjóðsins. 

Stjórn sjóðsins skipa því nú:

  • Formaður stjórnar: Sindri Ólafsson, Marel
  • Gjaldkeri: Linda Björg Stefánsdóttir, Reiknistofa bankanna
  • Ritari: Sunneva Þorsteinsdóttir, CCP
  • Meðstjórnandi:  Hjalti Harðarson, Landsbankinn
  • Óháður stjórnarmaður: Arnheiður Guðmundsdóttir, Ský

Sjóðurinn „Forritarar framtíðarinnar” er samfélagsverkefni sem hefur það hlutverk að efla forritunar- og tæknimenntun í grunn- og framhaldsskólum landsins. Um er að ræða samstarfsverkefni aðila atvinnulífsins. Framtíðarsýn sjóðsins er að auka fræðslu og áhuga á meðal barna og unglinga á forritun og tækni. Úthlutun úr sjóði Forritara framtíðarinnar fyrir árið 2022 fór fram á vormánuðum og styrkti sjóðurinn alls 18 skóla um sem nemur rúmlega 5 milljónum króna.

Hollvinir sjóðsins árið 2022 eru Reiknistofa bankanna, Landsbankinn, CCP, Össur, Íslandsbanki, Marel, Bentley Systems og WebMo design. 

Ný stjórn Forritara framtíðarinnar: Arnheiður Guðmundsdóttir, Sindri Ólafsson, Hjalti Harðarson, Linda Björg Stefánsdóttir og Sunneva Þorsteinsdóttir.

Úthlutun ársins 2022 lokið

Úthlutun úr sjóði Forritara framtíðarinnar hefur nú farið fram og styrkti sjóðurinn 18 skóla sem nemur rúmlega 5 milljónum króna í ár. Styrkir skiptast í tvo meginflokka, annars vegar er úthlutað um 1,9 milljónum króna vegna námskeiða sem kennarar geta sótt til að efla sig í forritunarkennslu og hins vegar er úthlutað um 3,4 milljónum króna til kaupa á smátækjum í forritunar- og tæknikennslu ásamt úthlutun á notuðum tölvubúnaði sem hollvinir FF gefa sjóðnum árlega. Skólarnir sem fengu styrk í ár eru: Höfðaskóli Skagaströnd, Patreksskóli, Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri, Hvassaleitisskóli, Sjálandsskóli, Skarðshlíðarskóli, Flataskóli, Grunnskóli Borgarfjarðar, Grunnskólinn á Ísafirði, Salaskóli, Sandgerðisskóli, Grunnskólinn á Hólmavík, Setbergsskóli, Kársnesskóli, Brúarásskóli, Kerhólsskóli í Grímsnesi, Grunnskóli Vestmannaeyja og Vogaskóli.

Ljóst er að þörf skóla er mikil á þessu sviði því í ár var sótt um styrki sem í heild nam rúmum 10 milljónum króna og því var ekki hægt að veita öllum styrk sem sóttu um. Þegar valið var úr umsóknum var horft til þess hvort skólar hafi sótt um og fengið styrk síðasta skólaár og var sett þak á styrkina; að hámarki var hægt að fá 200 þúsund króna styrk til að sækja námskeið í forritunarkennslu og að hámarki 250 þúsund króna styrk til tækjakaupa.  Við vonumst til að styrkurinn komi að góðum notum og styðji við hlutverk Forritara framtíðarinnar sem er að efla forritunar- og tæknimenntun í skólum landsins. Við þökkum hollvinum sjóðsins kærlega fyrir þeirra framlag.

Hollvinir sjóðsins árið 2022 eru: RB, Íslandsbanki, Landsbankinn, Marel, CCP, Bentley Systems og Webmo design.

Stjórn Forritara framtíðarinnar:
Arnheiður Guðmundsdóttir, Skýrslutæknifélag Íslands
Birgitta Strange, Marel
Friðrik Guðjón Guðnason, Landsbankinn
Linda Björg Stefánsdóttir, Reiknistofu bankanna
Sigfríður Sigurðardóttir, CCP

Opið fyrir umsóknir 2022

Búið er að opna fyrir umsóknir hjá Forriturum framtíðarinnar fyrir árið 2022. Eins og fyrri ár er hægt að sækja um námskeiðsstyrk fyrir kennara til forritunar- og tæknikennslu og yfirfarinn notaðan tölvubúnað. Einnig er hægt að sækja um styrk til kaupa á minni tækjum í forritunar- og tæknikennslu.

HÆGT ER AÐ SÆKJA UM:
– Námskeiðsstyrk fyrir kennara til forritunar- og tæknikennslu
– Tölvubúnað; notaðar borðvélar, skjáir, mýs og lyklaborð sem eru yfirfarnar af kerfistjórum  hollvina FF
– Styrk til kaupa á minni tækjum í forritunar- og tæknikennslu

Hægt er að sækja um styrk í einum eða fleiri af ofangreindum flokkum og er umsóknarformið undir valmyndinni SKÓLAR efst á síðunni.

SKILYRÐI STYRKVEITINGA
Skólinn tilgreinir þá fjárupphæð sem hann telur sig þurfa í þeim flokkum sem sótt er um. Ekki er hægt að lofa því að skólinn fái styrk fyrir allri upphæðinni sem sótt er um.

UMSÓKNARFRESTUR ER TIL 15. MAÍ 2022 OG NIÐURSTAÐA ÚTHLUTUNAR VERÐUR TILKYNNT Í TÖLVUPÓSTI Í BYRJUN JÚNÍ.

Skólar nýta styrkina vel

Í heildina hafa Forritarar framtíðarinnar úthlutað rúmum 35 milljónum króna til námskeiðs og tækjakaupa auk gerðar námsefnis. Einnig hefur sjóðurinn gefið 537 borðtölvur frá upphafi til skóla.
Þörfin er mikil hjá skólunum og geta nýir hollvinir alltaf bæst í hópinn og stutt þannig við sjóðinn og þannig stuðlað að góðri tæknikennslu í skólunum.

Eftirfarandi skólar fengu úthlutað vorið 2021 styrkjum til tækjakaupa eða námskeiðum fyrir kennara og verða að nýta styrkinn fyrir sumarfrí: Álftamýrarskóli, Borgaskóli, Djúpavogsskóli, Eskifjarðarskóla, Flóaskóli, Gerðaskóli, Glerárskóli, Grunnskóli Bolungarvíkur, Grunnskóli Drangsness, Grunnskóli Hornafjarðar, Grunnskólinn á Þórshöfn, Heiðarskóli, Helgafellsskóli, Hvaleyrarskóli, Kerhólsskóli, Lindaskóli, Öldutúnsskóli, Réttarholtsskóli, Reykjahlíðarskóli, Rimaskóli, Setbergsskóli, Suðurhlíðarskóli, Víkurskóli í Reykjavík, Vopnafjarðarskóli og Þjórsárskóli. Til viðbótar var 50 borðtölvum frá hollvinum Forritara framtíðarinnar úthlutað og fengu Suðurhlíðarskóli, Grunnskóli Grundarfjarðar, Gerðaskóli og Fellaskóli því góða viðbót við sinn tækjabúnað og geta vonandi nýtt tölvurnar í kennslu og þannig undirbúið forritara framtíðarinnar.

Ný stjórn FF tók við á aðalfundi sjóðsins í lok september 2021 og er skipuð eftirfarandi einstaklingum sem eru spennt að undirbúa úthlutun vorsins en opnað verður fyrir umsóknir í kringum páskana:
Friðrik G. Guðjónsson, Landsbankinn
Linda Björg Stefánsdóttir, Reiknistofa bankanna
Birgitta Strange, Össur
Sigfríður Sigurðardóttir, CCP
Arnheiður Guðmundsdóttir, Skýrslutæknifélag Íslands

Úthlutun 2021

Í ár styrkir sjóðurinn 24 skóla um sem nemur tæpum 5 milljónir króna. Styrkir skiptast í tvo meginflokka, annars vegar er úthlutað um 1,3 milljónum króna vegna námskeiða sem kennarar geta sótt til að efla sig í forritunarkennslu og hins vegar er úthlutað um 3,5 milljónum króna til kaupa á smátækjum í forritunar- og tæknikennslu ásamt úthlutun á notuðum tölvubúnaði sem hollvinir FF gefa sjóðnum árlega.

Ljóst er að þörf skóla er mikil á þessu sviði því í ár var sótt um styrki sem í heild nema tæpum 25 milljónum króna og því ljóst að ekki var hægt að veita öllum styrk sem sóttu um. Þegar valið var úr umsóknum var horft til þess hvort skólar hafi sótt um og fengið styrk síðustu tvö skólaár og var sett þak á styrkina; að hámarki var hægt að fá 100 þúsund króna styrk til að sækja námskeið í forritunarkennslu og að hámarki var hægt að fá 150 þúsund króna styrk til tækjakaupa.

Við óskum þeim skólum sem fengu úthlutað í ár innilega til hamingju og vonandi nýtist styrkurinn vel.

Opið fyrir umsóknir 2021

Búið er að opna fyrir umsóknir hjá Forriturum framtíðarinnar fyrir árið 2021.

Eins og fyrri ár er hægt að sækja um námskeiðsstyrk fyrir kennara til forritunar- og tæknikennslu og yfirfarinn notaðan tölvubúnað. Einnig er hægt að sækja um styrk til kaupa á minni tækjum í forritunar- og tæknikennslu. 

HÆGT ER AÐ SÆKJA UM:

  • Námskeiðsstyrk fyrir kennara til forritunar- og tæknikennslu
  • Tölvubúnað; notaðar borðvélar, skjáir, mýs og lyklaborð sem eru yfirfarnar af kerfistjórum  hollvina FF
  • Styrk til kaupa á minni tækjum í forritunar- og tæknikennslu

Hægt er að sækja um styrk í einum eða fleiri af ofangreindum flokkum.

SKILYRÐI STYRKVEITINGA
Skólinn tilgreinir þá fjárupphæð sem hann telur sig þurfa í þeim flokkum sem sótt er um. Ekki er hægt að lofa því að skólinn fái styrk fyrir allri upphæðinni sem sótt er um.

UMSÓKNARFRESTUR ER TIL 15. MAÍ 2021

 

Ný stjórn tekur við

Aðalfundur Forritara framtíðarinnar fór fram 9. október síðastliðinn. Á fundinum var kosin ný stjórn sem skipt hefur með sér verkum.

Í stjórn forritara framtíðarinnar eru: Friðrik G. Guðnason, forstöðumaður Högunar hjá Landsbankanum (formaður stjórnar), Elsa M. Ágústsdóttir, forstöðumaður markaðs- og samskiptamála hjá RB (gjaldkeri), Sigfríður Sigurðardóttir, skrifstofustjóri hjá CCP (meðstjórnandi) og Arnheiður Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Ský (óháður).

Úr stjórn fer Bjarki Snær Bragason, deildarstjóri hugbúnaðardeildar hjá Össuri sem jafnframt var gjaldkeri. Stjórn þakkar honum vel unnin störf. Í stað hans kemur Baldur Knútsson, forstöðumaður hugbúnaðarþróunar hjá Össuri kemur nýr inn í stjórn (gjaldkeri.)

 

29 grunnskólar fá styrki sem nema 9 milljónum króna frá Forriturum framtíðarinnar

Forritarar framtíðarinnar hafa nú lokið úthlutun styrkja fyrir þetta ár og hlutu 29 grunnskólar styrki sem nema 9 milljónum króna. 1,5 milljón rann til námskeiða innan skólanna en 7,5 milljónir til kaupa á smærri tækjum í forritunar og tæknikennslu ásamt úthlutun á notuðum tölvubúnaði. Ljóst er að þörfin á stuðningi á þessu sviði er mikil en í ár var sótt um styrki sem í heild nema yfir 40 milljónum króna og ekki var hægt að veita öllum styrk sem sóttu um. Mestur áhugi var fyrir því að fá styrki til kaupa á minni tækjum en einnig er mikið sótt um styrki fyrir námskeið og notaðan tölvubúnað. Hægt var að sækja um í eftirfarandi flokkum:

  • Námskeiðsstyrk fyrir kennara til forritunar- og tæknikennslu.
  • Tölvubúnað; notaðar borðvélar, skjáir, mýs og lyklaborð sem eru yfirfarnar af kerfisstjórum hollvina FF.
  • Styrk til námsefnisgerðar í forritunar- og tæknikennslu.
  • Styrk til kaupa á minni tækjum í forritunar- og tæknikennslu (ekki tölvur).

Skólarnir sem fengu styrk í ár eru: Álftanesskóli, Bíldudalsskóli, Dalvíkurskóli, Egilsstaðaskóli, Flataskóli, Flúðaskóli, Foldaskóli, Giljaskóli, Grenivíkurskóli, Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar, Gunnskóli Grunarfjarðar, Grunnskólinn í Stykkishólmi, Háaleitisskóli, Hlíðaskóli, Höfðaskóli, Kársnesskóli, Landakotsskóli, Laugarnesskóli, Myllubakkaskóli, Norðlingaskóli, Njarðvíkurskóli, Sjálandsskóli, Skarðshlíðarskóli, Táknafjarðarskóli, Valsárskóli, Varmahlíðarskóli, Vesturbæjarskóli, Víkurskóli og Vogaskóli.

„Við stöndum frammi fyrir því að hér er skortur á fólki menntuðu í upplýsingatækni. Börn og unglingar verja miklum tíma í notkun tækni en brýnt er að þjálfa og mennta þau til að nýta sér tæknina í víðari skilningi – og spilar sjóðurinn þar mikilvægt hlutverk.  Háskólar landsins útskrifa tæknimenntað fólk sem annar um það bil 50% eftirspurnar atvinnulífsins og á næstu árum er því þörf fyrir að minnsta kosti 100% aukningu á þessu sviði til þess að brúa bilið. Á sama tíma er mikill skortur á tækni- og tölvukennslu í grunn- og framhaldsskólum landsins,” segir Sigfríður Sigurðardóttir formaður stjórnar Forritara framtíðarinnar.

Forritarar framtíðarinnar er sjóður sem stofnaður var 2014 með þann tilgang að efla forritunar- og tæknimenntun í grunn- og framhaldsskólum landsins. Hollvinir sjóðsins í ár eru RB, Landsbankinn, CCP, Össur, Íslandsbanki og Webmo design. Vitað er að mikil þörf er á sjóðnum til að tengja saman viðskiptalífið, menntastofnanir og aðra hagsmunaaðila með það að leiðarljósi að sem flest ungmenni öðlist þá grunnhæfni sem til þarf til að verða forritarar framtíðarinnar.

Opið fyrir umsóknir 2020

Búið er að opna fyrir umsóknir hjá Forriturum framtíðarinnar fyrir árið 2020. 

Eins og fyrri ár er hægt að sækja um námskeiðsstyrk fyrir kennara til forritunar- og tæknikennslu og yfirfarinn notaðan tölvubúnað. Í ár verður einnig hægt er að sækja um styrk til námsefnisgerðar í forritunar- og tæknikennslu og styrk til kaupa á minni tækjum í forritunar- og tæknikennslu. Þessari nýjung sem var í boði í fyrsta sinn 2019  var tekið vel og allmargir sem fengu styrki þá. 

HÆGT ER AÐ SÆKJA UM:

  • Námskeiðsstyrk fyrir kennara til forritunar- og tæknikennslu.
  • Tölvubúnað; notaðar borðvélar, skjáir, mýs og lyklaborð sem eru yfirfarnar af kerfistjórum  hollvina FF.
  • Styrk til námsefnisgerðar í forritunar- og tæknikennslu. 
  • Styrk til kaupa á minni tækjum í forritunar- og tæknikennslu.

Hægt er að sækja um styrk í einum eða fleiri af ofangreindum flokkum.

SKILYRÐI STYRKVEITINGA
Skólinn tilgreinir þá fjárupphæð sem hann telur sig þurfa í þeim flokkum sem sótt er um.
Ekki er hægt að lofa því að skólinn fái styrk fyrir allri upphæðinni sem sótt er um.

  • Ef sótt er um styrk til námsefnisgerðar er skilyrði að námsefnið sé opið með Create Commons og sé skilað inn til Forritara Framtíðarinnar sem mun gera það aðgengilegt á heimasíðu sinni þannig að aðrir skólar geti nýtt efnið.
  • Ef sótt er um styrk til kaupa á minni tækjum í forritunar- og tæknikennslu þarf skólinn að tryggja að sótt sé námskeið í notkun tækjanna.
UMSÓKNARFRESTUR ER TIL 15. MAÍ 2020

Fleiri skólar en áður sækja um styrk til Forritara framtíðarinnar

Fréttatilkynning 10. júní 2019:

Fleiri skólar en áður sækja um styrk til Forritara framtíðarinnar

— Styrkir til skóla nema 12 milljónum króna. Nýjar úthlutunarreglur sjóðsins auka möguleika í styrkveitingum. Styrkir ná nú til námsefnisgerðar og minni tækja.

 

Mikil ánægja er með nýjar áherslur Forritara framtíðarinnar og umsóknir frá skólum hafa aldrei verið fleiri. Tilgangur sjóðsins er að efla forritunar- og tæknimenntun í grunn- og framhaldsskólum landsins.

Í ár styrkir sjóðurinn 30 skóla um sem nemur tæpum 12 milljónum króna að andvirði. Styrkur skiptast í tvo meginflokka, annars vegar tæpar 7,8 milljónir vegna námskeiða, námsefnisgerðar og kaupa á smærri tækjum í forritunar og tæknikennslu, og hins vegar rúmar 4,2 milljónir króna vegna tölvubúnaðar. Ljóst er að þörf skóla er mikil á þessu sviði því í ár var sótt um styrki sem í heild nema yfir 40 milljónum króna.

Að loknum stefnumótunarfundi með hagsmunaaðilum sjóðsins í vor voru gerðar breytingar á úthlutunarreglum sjóðsins þannig að styrkir næðu líka til námsefnisgerðar í forritunar- og tæknikennslu að því tilskyldu að námsefnið gæti nýst víðar og til kaupa á minni tækjum til nota við slíka kennslu. Þetta er viðbót við styrki sem áður hafa verið veittir til námskeiða fyrir kennara í forritunar- og tæknikennslu og tölvubúnaðar sem nýtist í skólum eftir að hafa verið gerður upp og yfirfarinn.

Þeir skólar sem fengu styrki á árinu eru: Sangerðisskóli, Vatnsendaskóli, Giljaskóli, Fellaskóli, Ingunnarskóli, Holtaskóli, Háaleitisskóli Reykjanesbæ, Leikskólinn Álfaheiði, Árskóli, Hrafnagilsskóli, Klébergsskóli, Bíldudalsskóli, Selásskóli, Smáraskóli, Grunnskóli Seltjarnarness, Skarðshlíðaskóli, Fossvogsskóli, Oddeyrarskóli, Foldaskóli, Flataskóli, Vættaskóli, Brekkubæjarskóli, Nesskóli, Gunnskólinn Hellu, Njarðvíkurskóli, Norðlingaskóli, Bláskógarskóli, Hólabrekkuskóli, Fellaskóli Fellabæ, Húnavatnsskóli og Háteigsskóli. Við óskum þeim öllum til hamingju og hvetjum þá sem ekki fengu styrk í ár til að sækja um aftur á næsta ári.

Sigfríður Sigurðardóttir, formaður stjórnar Forritara framtíðarinnar:

„Breytingarnar koma í kjölfar samráðs við þá sem notið hafa stuðnings Forritara framtíðarinnar. Okkur þótti mikilvægt að hlusta á hverjar þarfir þeirra væru og þróa sjóðinn í takt við breytingar í umhverfi skólanna og laga starfsemi hans að þörfum þeirra. Með þessu uppfyllum við betur markmið sjóðsins, sem er að stuðla að aukinni fræðslu og áhuga meðal barna og unglinga á forritun og tækni, að tækjavæða skólana, auka þjálfun og endurmenntun kennara og stuðla að því að forritun verði hluti af námskrá grunn- og framhaldsskóla. Það gleður okkur mjög hversu góðar viðtökur nýjar áherslur sjóðsins hafa fengið og við hlökkum til áframhaldandi uppbyggingar og samstarfs við grunn- og framhaldsskóla landsins.“

Um Forritara framtíðarinnar:

Sjóðurinn Forritarar framtíðarinnar er samfélagsverkefni sem hefur það hlutverk að efla forritunar- og tæknimenntun í grunn- og framhaldsskólum landsins. Hollvinir sjóðsins eru RB, Íslandsbanki, Landsbankinn, CCP, Icelandair, Össur, KOM ráðgjöf, Webmo design og Mennta- og menningarmála-ráðuneytið.

Nánari upplýsingar veitir Sigfríður Sigurðardóttir, stjórnarformaður Forritara framtíðarinnar og skrifstofustjóri CCP, í síma 697-3691. Sjá einnig www.forritarar.is.